Íslenska

Kent Lárus er kanadískur að uppruna en íslenskur í báðar ættir, stoltur Vestur-Íslendingur með íslenskt ríkisfang síðan 2008.

Hann er menntaður leiðsögumaður og hefur farið með hópa vítt og breytt um landið síðastliðin ár. Kent Lárus hefur margra ára reynslu í að skipuleggja hópferðir út fyrir landsteinana, einkum til Norður Ameríku og hefur hann farið með fjölda kóra og hópa af ýmsum stærðum og gerðum á Íslendingaslóðir í Vesturheimi.